Stórar vörur heim
Ég sæki það í IKEA, Bauhaus eða Húsasmiðjuna — eða til seljandans á Marketplace — og keyri það heim til þín, oft samdægurs.
Ertu að kaupa á Marketplace? Sendu mér SMS með því hvar hluturinn er og hvert hann á að fara, þá gef ég þér áætlun.

Magnús Helgi Sigurðsson
Smáskutl · Hafnarfjörður

Bíllinn
Ég er á löngum sendibíl með háum toppi og handvagninn er alltaf með í bílnum. Þetta fer allt í eina ferð:
Ertu ekki viss? Hringdu og lýstu dótinu fyrir mér. Ef það passar ekki segi ég þér það strax í símanum — í stað þess að mæta og bakka út.
Verð
Ég keyri eftir opinberum taxta Sendibílastöðvarinnar með löggiltum gjaldmæli. Skutl úr verslun eða frá seljanda er í flokki 1.
Ef ég ber hlutinn inn með þér telst það burður og fer í flokk 2 á taxtanum. Segðu mér frá því þegar þú hringir, þá veistu að hverju þú gengur.
Flokkur 1 · taxti frá 15. mars 2026
Öll verð eru með 24% VSK.
Hringdu eða sendu SMS. Ég staðfesti tíma og gef þér verðáætlun.
01
Síminn er 848-3219. Segðu mér hvað þarf að flytja, hvaðan og hvert — og hvort það þurfi burð. Ég gef þér áætlun strax.
02
Á réttum tíma, með teppi og spennur. Þú færð hringingu þegar ég legg af stað svo þú vitir nákvæmlega hvenær ég kem.
03
Dótið fer heilt á áfangastað og ég geng frá eftir mig. Þú greiðir samkvæmt gjaldmælinum.
Spurt og svarað
Ef svarið er ekki hér, hringdu. Það er fljótlegra en að giska.
Nær alltaf. Ég er á löngum sendibíl með háum toppi — sófi, hjónarúm, þvottavél, ísskápur og borðstofusett fara í eina ferð. Ef dótið þitt er á mörkunum segi ég þér það í símanum og þá ákveðum við hvort þetta þarf tvær ferðir.
Umsagnir
Magnús er einn af þeim mönnum sem þú getur treyst þegar eitthvað þarf að klárast almennilega. Hann er duglegur, áreiðanlegur og tekur vinnuna sína alvarlega, en er um leið þægilegur í samskiptum og alltaf tilbúinn að finna lausn. Ég þekki sjálfur vel hvað sendibílavinna krefst og get því með góðri samvisku mælt með honum og þjónustunni hans.
Magnús hjá Smáskutli er lipur og hress. Allt stóðst eins og stafur á bók. Mæli með honum.
Fékk Magga hjá smáskutl til að hjálpa mér með flutning. Súper góð þjónusta hjá honum.
Frábær þjónusta hjá Magga. Alltaf jákvæður og gott að fá hann í verkefni
Frábær þjónusta fyrir mjög sanngjarnt verð.
Snögg og góð þjónusta
Toppmaður!