Persónuvernd og vafrakökur

Þessi síða er auglýsing fyrir sendibílinn minn. Það er ekkert form á henni og ég safna engu um þig í gegnum hana nema því sem stendur hér að neðan.

Hver ber ábyrgð

Smáskutl, Magnús Helgi Sigurðsson, Hafnarfirði. Sími 848-3219.

Heimsóknatalning frá Cloudflare

Síðan er hýst hjá Cloudflare. Ég sé hjá þeim hversu margir skoða hverja síðu, hvaðan þeir koma (til dæmis af Facebook eða Google) og hvort þeir eru í síma eða tölvu. Þetta notar engar vafrakökur og þekkir þig ekki aftur á milli heimsókna, svo ég þarf ekki að spyrja um leyfi fyrir því.

Meta-pixillinn — aðeins ef þú segir já

Ég auglýsi á Facebook og Instagram. Ef þú leyfir það segir pixillinn frá Meta mér hvort auglýsingarnar skila sér: hvaða síður hér þú skoðaðir og hvort þú smelltir á símanúmerið eða SMS-hnappinn. Meta setur þá vafrakökuna _fbp og getur tengt heimsóknina við Facebook-aðganginn þinn samkvæmt persónuverndarstefnu Meta.

Lagagrundvöllurinn er samþykki þitt (a-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar, sbr. lög nr. 90/2018, og 2. mgr. 88. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022). Ég og Meta Platforms Ireland Ltd. berum sameiginlega ábyrgð á því að upplýsingunum sé safnað hér og þær sendar til Meta. Eftir það ber Meta eitt ábyrgð á því sem gert er við þær, og Meta getur flutt þær til Bandaríkjanna samkvæmt sínum skilmálum.

Ef þú segir nei hleðst pixillinn aldrei og síðan virkar nákvæmlega eins. Valið er geymt í vafranum þínum svo ég spyrji ekki aftur. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er undir „Vafrakökustillingar" neðst á hverri síðu. Ef þú dregur samþykkið til baka hættir pixillinn að senda og Meta-kökunum er eytt úr vafranum.

Þegar þú hringir eða sendir SMS

Þá fæ ég símanúmerið þitt eins og í hverju öðru símtali, og það sem þú segir mér um verkið. Ég nota það bara til að vinna verkið og læt það engum öðrum í té.

Réttindi þín

Þú getur alltaf spurt mig hvað ég veit um þig og beðið mig að eyða því. Ef þér finnst ekki rétt farið með upplýsingarnar þínar getur þú leitað til Persónuverndar.