
Sorpuferðir og tiltekt
Flokkur 1
Ég sæki draslið og keyri það í Sorpu — líka heil dánarbú. Þú þarft hvorki að eiga kerru né fara á endurvinnslustöðina.
Meira um sorpuferðirSendibílaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu
Ég heiti Magnús og rek Smáskutl í Hafnarfirði. Ég sæki, flyt og keyri í Sorpu fyrir fólk og fyrirtæki. Verðið er reiknað með löggiltum gjaldmæli og ég gef þér áætlun áður en ég legg af stað.
Ég svara sjálfur í símann. Er ég að keyra? Þá hringi ég til baka um leið og ég stoppa.

Magnús Helgi Sigurðsson
Smáskutl · Hafnarfjörður
250+
Manns sem ég hef skutlað fyrir
8 ár
Á sendibíl á höfuðborgarsvæðinu
6 bæir
Þjónustusvæði frá Hafnarfirði
Sama dag
Oftast laus með stuttum fyrirvara
Þjónusta og verð
Segðu mér hvað á að fara og hvert. Þú færð áætlun í símanum, og mælirinn segir svo nákvæmlega hvað þetta kostaði.

Flokkur 1
Ég sæki draslið og keyri það í Sorpu — líka heil dánarbú. Þú þarft hvorki að eiga kerru né fara á endurvinnslustöðina.
Meira um sorpuferðir
Flokkur 2
Lítil búslóð, stök húsgögn eða heill flutningur. Teppi undir og spennur á allt sem getur hreyfst. Þegar burður fylgir verkinu fer það í flokk 2 á taxtanum.
Meira um búslóðaflutninga
Flokkur 1
Sendingar fyrir lítil fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Reikningur, sami bílstjóri í hvert skipti og hægt að setja upp fastan vikutúr.
Meira um fyrirtækjasendingar
Flokkur 1
Ég sæki stærri vörur úr Marketplace, IKEA og Bauhaus og keyri heim til þín. Þú kaupir, ég skutla.
Meira um IKEA- og Marketplace-skutlVerðið er reiknað með löggiltum gjaldmæli samkvæmt opinberum taxta Sendibílastöðvarinnar. Þú greiðir startgjald, tímann sem verkið tekur og kílómetrana. Hringdu og lýstu verkinu, þá gef ég þér áætlun áður en ég legg af stað.
| Taxti frá 15. mars 2026 | Flokkur 15–12 m³, að 1,4 tonn | Flokkur 212–22 m³, 1,4–2,3 tonn |
|---|---|---|
| Startgjald | 2.957 kr. | 3.400 kr. |
| Klukkustund í dagvinnu | 14.245 kr. | 16.383 kr. |
| Klukkustund í næturvinnu | 17.808 kr. | 20.479 kr. |
| Kílómetri í dagvinnu | 441 kr. | 507 kr. |
| Kílómetri í næturvinnu | 659 kr. | 758 kr. |
Flokkur 1: Skutl, sendingar og sorpuferðir. Flokkur 2: Búslóðaflutningar og burður.
Öll verð eru með 24% VSK.
Dæmi: klukkutíma sorpuferð innan Hafnarfjarðar
Innifalið í taxtanum
Það eina sem getur bæst við
Fyrirtæki og verktakar
Ég keyri fyrir verkstæði, verktaka, verslanir og húsfélög á höfuðborgarsvæðinu. Sami bílstjóri, sami bíll, löggiltur gjaldmælir og reikningur.
Eftir mæli
Þú hringir í dag, ég keyri í dag. Áætlun í símanum og reikningur ef þú vilt. Góð leið til að prófa mig.
Sami dagur, sami tími
Ég mæti á umsömdum tíma í hverri viku. Þú þarft ekki að hringja í hvert skipti.
Einn reikningur á mánuði
Allar ferðir mánaðarins á einum reikningi. Þú setur mig upp sem birgja einu sinni og bókhaldið er einfalt eftir það.
Þetta fæst með samningi
Hentar vel fyrir
Segðu mér hvað þarf að gerast og hversu oft. Við byrjum á einum túr — ef hann gengur vel gerum við hann að föstum lið í vikunni. Ekkert bindandi.

Bíllinn
Ég er á löngum sendibíl með háum toppi og handvagninn er alltaf með í bílnum. Þetta fer allt í eina ferð:
Ertu ekki viss? Hringdu og lýstu dótinu fyrir mér. Ef það passar ekki segi ég þér það strax í símanum — í stað þess að mæta og bakka út.
Hringdu eða sendu SMS. Ég staðfesti tíma og gef þér verðáætlun.
01
Síminn er 848-3219. Segðu mér hvað þarf að flytja, hvaðan og hvert — og hvort það þurfi burð. Ég gef þér áætlun strax.
02
Á réttum tíma, með teppi og spennur. Þú færð hringingu þegar ég legg af stað svo þú vitir nákvæmlega hvenær ég kem.
03
Dótið fer heilt á áfangastað og ég geng frá eftir mig. Þú greiðir samkvæmt gjaldmælinum.

Um mig
Ég hef verið á sendibíl í Hafnarfirði í átta ár og skutlað fyrir á þriðja hundrað manns — sófum, búslóðum, bílskúrum fullum af drasli og ýmsu sem passaði ekki í fólksbíl.
Það er ég sem svara símanum og ég sem mæti — á réttum tíma, og ég fer varlega með dótið. Sami maður, sami bíll.
Heimavöllurinn er Hafnarfjörður, en ég skutlast um allt höfuðborgarsvæðið.
Heimavöllurinn er Hafnarfjörður og ég er oft laus sama dag. Ég keyri líka út fyrir svæðið — spurðu bara.
Spurt og svarað
Ef svarið er ekki hér, hringdu. Það er fljótlegra en að giska.
848-3219Það er löggiltur gjaldmælir í bílnum og ég keyri eftir taxta Sendibílastöðvarinnar: startgjald, tíminn sem verkið tekur og kílómetrarnir. Klukkutíma ferð innan Hafnarfjarðar með um 15 km akstri er nálægt 23.800 kr. með VSK. Hringdu og lýstu verkinu, þá gef ég þér áætlun áður en ég legg af stað. Gjaldskrá Sorpu er þeirra, ekki mín, og bætist við — þú færð kvittunina í hendur svo þú sérð nákvæmlega hvað ég borgaði.
Umsagnir
Magnús er einn af þeim mönnum sem þú getur treyst þegar eitthvað þarf að klárast almennilega. Hann er duglegur, áreiðanlegur og tekur vinnuna sína alvarlega, en er um leið þægilegur í samskiptum og alltaf tilbúinn að finna lausn. Ég þekki sjálfur vel hvað sendibílavinna krefst og get því með góðri samvisku mælt með honum og þjónustunni hans.
Magnús hjá Smáskutli er lipur og hress. Allt stóðst eins og stafur á bók. Mæli með honum.
Fékk Magga hjá smáskutl til að hjálpa mér með flutning. Súper góð þjónusta hjá honum.
Frábær þjónusta hjá Magga. Alltaf jákvæður og gott að fá hann í verkefni
Frábær þjónusta fyrir mjög sanngjarnt verð.
Snögg og góð þjónusta
Toppmaður!