Búslóðaflutningar á höfuðborgarsvæðinu
Þú þarft ekki að eiga vin með sendibíl. Lítil búslóð, stök húsgögn eða heill flutningur: ég er á löngum sendibíl með háum toppi og gef þér áætlun í símanum áður en ég legg af stað.
Segðu mér frá stiganum og stærstu hlutunum þegar þú hringir. Þá veit ég hvað verkið tekur langan tíma og hvort það þarf eina ferð eða tvær.

Magnús Helgi Sigurðsson
Smáskutl · Hafnarfjörður

Bíllinn
Ég er á löngum sendibíl með háum toppi og handvagninn er alltaf með í bílnum. Þetta fer allt í eina ferð:
Ertu ekki viss? Hringdu og lýstu dótinu fyrir mér. Ef það passar ekki segi ég þér það strax í símanum — í stað þess að mæta og bakka út.
Verð
Búslóðaflutningar eru í flokki 2 á taxta Sendibílastöðvarinnar, því burður fylgir yfirleitt verkinu. Löggiltur gjaldmælir telur startgjaldið, tímann og kílómetrana.
Hringdu og lýstu búslóðinni, þá gef ég þér áætlun áður en ég legg af stað.
Flokkur 2 · taxti frá 15. mars 2026
Öll verð eru með 24% VSK.
Undirbúningur
Mælirinn telur tímann sem verkið tekur. Allt sem er tilbúið þegar ég mæti styttir hann.
Hringdu eða sendu SMS. Ég staðfesti tíma og gef þér verðáætlun.
01
Síminn er 848-3219. Segðu mér hvað þarf að flytja, hvaðan og hvert — og hvort það þurfi burð. Ég gef þér áætlun strax.
02
Á réttum tíma, með teppi og spennur. Þú færð hringingu þegar ég legg af stað svo þú vitir nákvæmlega hvenær ég kem.
03
Dótið fer heilt á áfangastað og ég geng frá eftir mig. Þú greiðir samkvæmt gjaldmælinum.
Spurt og svarað
Ef svarið er ekki hér, hringdu. Það er fljótlegra en að giska.
Ég er með sendibíl og sé um að koma dótinu heilu á áfangastað. Ef þú þarft líka aðstoð við burðinn sjálfan þá geri ég það — það telst þá búslóð og burður og fer í flokk 2 á taxtanum, og mælirinn telur þann tíma sem það tekur. Segðu mér frá því strax þegar þú hringir, þá veistu að hverju þú gengur og ég mæti með réttan búnað.
Umsagnir
Fékk Magga hjá smáskutl til að hjálpa mér með flutning. Súper góð þjónusta hjá honum.
Magnús er einn af þeim mönnum sem þú getur treyst þegar eitthvað þarf að klárast almennilega. Hann er duglegur, áreiðanlegur og tekur vinnuna sína alvarlega, en er um leið þægilegur í samskiptum og alltaf tilbúinn að finna lausn. Ég þekki sjálfur vel hvað sendibílavinna krefst og get því með góðri samvisku mælt með honum og þjónustunni hans.
Magnús hjá Smáskutli er lipur og hress. Allt stóðst eins og stafur á bók. Mæli með honum.
Frábær þjónusta hjá Magga. Alltaf jákvæður og gott að fá hann í verkefni
Frábær þjónusta fyrir mjög sanngjarnt verð.
Snögg og góð þjónusta
Toppmaður!