Fyrirtækjasendingar á höfuðborgarsvæðinu
Þú selur, ég skutla. Varahlutur í Kópavog, sófi heim til kúnnans eða efni á verkstað: ég keyri það fyrir þig, á föstum degi í viku eða þegar þú hringir.
Segðu mér hvað þarf að fara, hvert og hversu oft. Við byrjum á einum túr og sjáum hvernig gengur. Ekkert bindandi.

Magnús Helgi Sigurðsson
Smáskutl · Hafnarfjörður
Fyrirtæki og verktakar
Ég keyri fyrir verkstæði, verktaka, verslanir og húsfélög á höfuðborgarsvæðinu. Sami bílstjóri, sami bíll, löggiltur gjaldmælir og reikningur.
Eftir mæli
Þú hringir í dag, ég keyri í dag. Áætlun í símanum og reikningur ef þú vilt. Góð leið til að prófa mig.
Sami dagur, sami tími
Ég mæti á umsömdum tíma í hverri viku. Þú þarft ekki að hringja í hvert skipti.
Einn reikningur á mánuði
Allar ferðir mánaðarins á einum reikningi. Þú setur mig upp sem birgja einu sinni og bókhaldið er einfalt eftir það.
Þetta fæst með samningi
Hentar vel fyrir
Segðu mér hvað þarf að gerast og hversu oft. Við byrjum á einum túr — ef hann gengur vel gerum við hann að föstum lið í vikunni. Ekkert bindandi.

Bíllinn
Ég er á löngum sendibíl með háum toppi og handvagninn er alltaf með í bílnum. Þetta fer allt í eina ferð:
Ertu ekki viss? Hringdu og lýstu dótinu fyrir mér. Ef það passar ekki segi ég þér það strax í símanum — í stað þess að mæta og bakka út.
Verð
Fyrirtækjasendingar eru í flokki 1 á taxta Sendibílastöðvarinnar. Löggiltur gjaldmælir telur startgjaldið, tímann og kílómetrana, og taxtinn er sá sami fyrir alla.
Ef ég ber vöruna inn til kúnnans telst það burður og fer í flokk 2 á taxtanum. Segðu mér frá verkinu og þú færð áætlun áður en fyrsti túrinn fer.
Flokkur 1 · taxti frá 15. mars 2026
Öll verð eru með 24% VSK.
Spurt og svarað
Ef svarið er ekki hér, hringdu. Það er fljótlegra en að giska.
Já. Við setjum upp fastan dag og tíma í viku og þá þarftu ekki að hringja í hvert skipti. Allar ferðir mánaðarins geta farið á einn reikning svo bókhaldið sé einfalt. Ekkert bindandi — við prófum einn túr og sjáum hvernig gengur.
Umsagnir
Magnús er einn af þeim mönnum sem þú getur treyst þegar eitthvað þarf að klárast almennilega. Hann er duglegur, áreiðanlegur og tekur vinnuna sína alvarlega, en er um leið þægilegur í samskiptum og alltaf tilbúinn að finna lausn. Ég þekki sjálfur vel hvað sendibílavinna krefst og get því með góðri samvisku mælt með honum og þjónustunni hans.
Magnús hjá Smáskutli er lipur og hress. Allt stóðst eins og stafur á bók. Mæli með honum.
Fékk Magga hjá smáskutl til að hjálpa mér með flutning. Súper góð þjónusta hjá honum.
Frábær þjónusta hjá Magga. Alltaf jákvæður og gott að fá hann í verkefni
Frábær þjónusta fyrir mjög sanngjarnt verð.
Snögg og góð þjónusta
Toppmaður!